|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 01 febrúar 2012 11:27 |
|
Ömmu og afa morgunverður

Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Í tilefni dagsins ætlum við að bjóða ömmum og öfum í morgunmat og söngstund með börnunum. Dagskráin hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10:00.
Vonandi sjáum við sem flesta.
Kveðja frá starfsfólki og börnum í seljakoti
|
|
|
úti er alltaf að snjóa... |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 25 janúar 2012 13:01 |
|
Í dag kom sögubíllinn Æringi og las sögu fyrir elstu börnin.
Hér má sjá æringjasönginn

Æringjasöngurinn
Æringi þú ert okkar bíll í borginni í dag. Börnum segir sögur, þú hefur á því lag.
Inni í þér eru ævintýrin ótrúlega snjöll.
Um dverga, drauga og drottningar, dordingla og tröll.
:,: Æringi, Æringi, Æringi. Vertu velkominn:,:
Höfundur texta: Ingibjörg Hafliðadóttir, starfsmaður Borgarbókasafns..
Úti er alltaf að snjóa

Nú er mikill snjór úti og finnst börnunum gaman að leika sér í snjónum, sumir byggja snjókalla, aðrir búa til snjóbolta eða renna sér á þotum niður brekkuna. Svo er alltaf gaman að renna sér í rennibrautinni og róla.
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 20 janúar 2012 13:49 |
|
Bóndadagur og þorrablót
Í dag var Bóndadagurinn haldinn hátíðlegur hjá okkur í Seljakoti og vorum við með þorrablót í tilefni dagsins.
Við hittumst í salnum eftir útiveru og allir voru með þorrakórónurnar sínar. Í hádeginu var svo þorramatur og grjónagrautur.

|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 48 |