|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Erna Karen
|
|
föstudagur, 09 apríl 2010 14:21 |
|
Menningarhátíð barna 19. – 25. Apríl 2010
Menningarhátíð barna hefst mánudaginn 19. apríl og lýkur sunnudaginn 25. apríl. Þema hátíðarinnar er forvitni.
Seljakot ætlar að taka þátt í menningarhátíðinni í samstafi við leikskólana Grænuborg, Lækjaborg og Mýri og Sólu en hún er sögukonan í sögubílnum Æringja. Krummi er valinn sem meginverkefni þar sem hann er einstaklega forvitinn og stríðinn fugl, glysgjarn og þjófóttur og svo er hann spörfugl í ofanálag. Við notum forvitnina sem útgangspunt.
Sóla og sögubíllinn koma í heimsókn í Seljakot mánudaginn 12. apríl, Sóla ætlar að hitta börnin í Koti og Seli í salnum kl. 9:30 og kl. 10:00 býður hún börnunum í Bóli út í sögubílinn Æringja. Sóla ætlar að segja börnunum sögur af Krumma og jafnvel að semja ljóð um krumma. Til er fjöldinn allur af íslenskum lögum um krumma, ljóðum og sögum. Eins og við erum vön í vinnu með börnunum þá látum við sköpunarkraftinn og hugmyndarflugið ráða för.
Samstarfsleikskólarnir fjórir hafa fengi herbergi í Ævintýrahöllinni Fríkirkjuvegi 11 til að hengja upp verkefni sem fæðast í kringum Krummaþemað. Í menningarvikunni, miðvikudaginn 21. apríl ætla börnin í Bóli að heimsækja Menningarmiðstöðina í Gerðubergi . Gerðuberg býður upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá um krumma fyrir eldri börn leikskóla. Dagskráin er í umsjá Báru Grímsdóttur og Chris Foster . Í kynningu segir að þau séu frábært tvíeki þegar þjóðleg tónlist er annars vegar og því um einstaka upplifun að ræða fyrir börnin.
Hægt er að nálgast dagskrá hátíðarinnar á barnamenningarhatid.is.
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Erna Karen
|
|
miðvikudagur, 31 mars 2010 14:11 |
|
Gleðilega páska!

|
|
greiðsla í foreldrafélagið |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Erna Karen
|
|
þriðjudagur, 30 mars 2010 15:24 |
|
Ágætu foreldrar
Nú er komið að því að greiða í sjóð foreldrafélagsins
Þeir sem greiða fyrir 1. maí 2010 sleppa við að borga þjónustugjöldin í bankanum, sem eru 215 kr.
Við viljum endilega minna ykkur á að þessir peningar fara í að greiða fyrir ýmsar skemmtanir fyrir börnin okkar, ss. jólasveininn, jólagjafir, sveitaferðina, leiksýningar og sumarhátíð.
Gjaldið fyrir þennan árshluta er 3000 kr. og 4500 kr. fyrir systkini.
Reikningsnúmerið er: 537-26-6503
Kennitala: 650397-3049
Í skýringar setjið þið nafnið á barninu sem greitt er fyrir.
ÞAÐ ER MJÖG MIKLVÆGT AÐ SKÝRINGIN GLEYMIST EKKI
Kveðja,
Stjórn foreldrafélagsins |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 5 af 30 |