|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Erna Karen
|
|
fimmtudagur, 21 janúar 2010 10:48 |
|
Afmælisdagar barnanna
Kæru foreldrar/forráðamenn
Nokkrar breytingar hafa verið á afmælisveislum barnanna og nú er þeim þannig háttað að á afmælisdaginn er barnið í hávegum haft, það fær afmæliskórónu, teknar eru myndir af því, þær hengdar upp og fara svo í persónumöppu barnsins. Þá er barnið miðpunktur dagsins og er m.a. umsjónamaður, það fær að velja fyrst, velja hvað er sungið og hvaða bók er lesin í samverustund og jafnvel hvaða leiki er farið í. Leikskólinn hefur komið sér upp sérstökum afmæliskassa og fá börnin að velja sér afmælisskraut til borðskreytinga. Börnin eru í aðalhlutverki þennan dag.
Ekki verður í boði að koma með ís að heiman eða aðrar veitingar. Börn í leikskólum eru að yngjast mikið, sum hver ekki farin að fá ís eða annað sætindi. Þá er verið að reyna að sporna gegn sætindum og kostnaði sem sumir foreldrar vilja kannski vera án.
Ef foreldrar vilja bjóða börnunum af deildinni heim er mælst til þess að þeir setji ekki ,,afmælisboðskort" í hólf barnanna heldur fái upplýsingar hjá starfsfólki deilda um heimilisföng eða símanúmer barnanna. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Erna Karen
|
|
mánudagur, 14 desember 2009 13:32 |
|
Skipulagsdagur
4. janúar verður skipulagsdagur í Seljakoti þann dag verður leikskólinn lokaður.
|
|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Erna Karen
|
|
föstudagur, 04 desember 2009 13:38 |
|
Aðventukaffi
Aðventukaffi fyrir foreldra verður miðvikudaginn 9 desember kl. 14:30.
Börnin syngja í salnum og bjóða foreldrum upp á kaffi og piparkökur á sinni deild.

|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 9 af 30 |