|
Miðvikudaginn 16. júní 2010 ætlum við að halda okkar árlegu hátíð
í tengslum við þjóðhátíðardaginn.
Með þessari hátíð vekjum við þjóðarvitund barnanna og
fræðum þau um fánann okkar og lýðveldisdaginn.
Farið verður í skrúðgöngu með leikskólunum í hverfinu og
byrjar hún kl:10:30 frá Hálsakoti og Hálsaborg undir lúðrablæstri.
Við Seljahlíð höfum við stutta viðdvöl og syngjum með heimilisfólkinu.
Eftir gönguna heldur hver leikskóli hátíð í sínum garði
þar sem farið verður í leiki og boðið verður upp á pylsur
Skrúðgönguleið
Gengið verður frá bifreiðastæðinu við Hálsakot/Hálsaborg að göngustíg við enda Flúðasels,
niður hann framhjá Seljaskóla og að Seljahlíð, kringum tjörnina.
Börnin í Jöklaborg, Seljaborg og Seljakoti þurfa að vera mætt í sinn leikskóla hálftíma fyrir skrúðgöngu.
Foreldrar og systkini eru velkomin.
Ef systkini koma með verða þau að vera í fylgd með fullorðnum.
|