Mikilvægt er að hafa föt til skiptanna, nærföt, buxur, sokka og vettlinga. Hafa góð og hlý útiföt og klæðast eftir veðri. Nauðsýnlegt er að merkja allan fatnað. Muna að tæma fatahólfin á föstudögum.
Myndaalbúm
Höfundur: Skrifstofan
þriðjudagur, 22 maí 2007 10:20
Við teljum myndaalbúm geta auðveldað börnum aðlögunina og dvölina í leikskólanum. Það er ánægjulegt að hafa nokkrar myndir af sínum nánustu í myndaalbúmi.
Slys á börnum
Höfundur: Skrifstofan
þriðjudagur, 22 maí 2007 10:15
Ef börnin verða fyrir slysi í leikskólanum er haft samband við foreldra og í samráði við þá er metið hvort leita þurfi til læknis. Mjög mikilvægt er að hægt sé að ná í foreldra símleiðis.
Dvalarsamningur
Höfundur: Skrifstofan
þriðjudagur, 22 maí 2007 10:03
Mikilvægt er að virða umsaminn dvalarsamning m.a. vegna skipulagningar á öllu innra starfi leikskólans og starfsmannahaldi.
Bílar í lausagangi
Höfundur: Skrifstofan
þriðjudagur, 22 maí 2007 10:00
Við viljum benda á að mengun getur haft slæm áhrif á heilsu okkar og sérstaklega þá sem eru með bronkítis-, asma- eða lungnasjúkdóma. Það er því mikilvægt fyrir börnin ykkar að bílar séu ekki skildir eftir í lausagangi á meðan hlaupið er inn með börnin eða þau sótt í leikskólann.