Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn Seljakot Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Administrator   
mánudagur, 12 apríl 2004 11:54
Einkunarorð Seljakots er frumkvæði - sköpun - tjáning
Seljakot tók til starfa haustið 1996. Í leikskólanum dvelja fimmtíu og átta börn samtímis á aldrinum eins til sex ára. Deildarnar eru þrjár og heita Kot, Sel og Ból. í Seli er yngsti hópurinn, í Koti er miðjuhópurinn og í Bóli er elsti hópurinn. Reynt er að aldurskipta börnunum eins mikið og unnt er hverju sinni. Þannig verður starfið þroskamiðaðra og auðveldara í öllu skipulagi.

Í starfi okkar með börnunum er meðal annars horft til hugmyndafræði Reggio Emilila á Ítalíu en sú hugmyndafræði er þekkt fyrir skapandi starf og gagnrýna hugsun. Lögð er áhersla á að börnin fái tækifæri til að nýta sem flesta hæfileika sína svo þeir geti orðið skapandi, gagnrýnir og sjálfstæðir einstaklingar. Þegar unnið er í anda þessara stefnu er það vinnuferlið sem skiptir mestu máli, þar sem skynjun, forvitni og ímyndunarafla barnsins fær að njóta sín.
Leikskólinn er staðsettur við Rangársel í Seljahverfi, niður við dalinn, mitt á milli Seljakirkju og Ölduselsskóla. Umhverfið er fallegt  og ákaflega fjölbreytt með rennandi vatni, trjám og ýmsum gróðri sem bíður upp á ótal útivistarmöguleika.

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Seljakot | Rangárseli 15 | 109 Reykjavík | Sími: 557-2350 | Póstur | Viðburðir | Fréttir