Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Velkomin í leikskólann Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Administrator   
mánudagur, 06 nóvember 2006 15:36

Í Seljakoti er lögð áhersla á gott samstarf við foreldra og afslappað og jákvætt viðmót í daglegum samskiptum. Foreldrar eru ávallt velkomnir í Seljakot til að fylgjast með leikskólastarfinu. Gott leikskólastarf nær mestum árangri með metnaði og ánægðu starfsfólki. Við leggjum áherslu á að starfsmannahópurinn nái vel saman og sé sammála um leiðir að markmiðum í starfi með börnunum.
Tekið er mið af þörfum og þroska hvers einstaklings í Seljakoti. Börn læra á ólíkan hátt og þroskast mishratt. Öll börn læra best í leik og starfi með öðrum börnum.
Þegar barn byrjar í aðlögun þarf það góðan tíma til að kynnast leikskólanum, starfsfólki og hinum börnunum. Á aðlögunartíma er lagður hornsteinn að öryggi og vellíðan barnsins og samstarfi heimilis og skóla. Til að það takist sem best höfum við skipulagt aðlögunarferli sem má nálgast hér.
Haldinn er foreldrafundur að vori fyrir nýja foreldra. Tilgangur fundarins er að kynna helstu áherslur í uppeldisstarfi Seljakots. Við upphaf leikskóladvalar eru forráðamenn boðaðir í viðtal, þar sem gagnkvæm upplýsingamiðlun fer fram.  Ef barn byrjar í leikskólanum á miðju skólaári eru foreldrar boðaðir í viðtal þar sem farið er yfir báða þessa þætti.
Hér má nálgast mikilvægar upplýsingar:  
pdf velkomin i Seljakot

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Seljakot | Rangárseli 15 | 109 Reykjavík | Sími: 557-2350 | Póstur | Viðburðir | Fréttir